Einar Örn Gunnarsson söng til sigurs

Einar Örn Gunnarsson sigurvegari söngkeppni FNV 2017. Mynd: Þorkell V. Þorsteinsson.
Einar Örn Gunnarsson sigurvegari söngkeppni FNV 2017. Mynd: Þorkell V. Þorsteinsson.

Söngkeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var haldin á sal skólans föstudaginn 17. febrúar sl. fyrir fullu húsi áhorfenda. Ellefu flytjendur fluttu tíu lög, hvert öðru betra, eins og segir á vef skólans. Rannveig Sigrún Stefánsdóttir, sem sigraði í söngkeppni félagsmiðstöðva á Norðurlandi, flutti lag sem gestur og vann hug og hjörtu áhorfenda.

Þannig fór að Einar Örn Gunnarsson bar sigur úr býtum í keppninni með Bon Jovi slagarann, Bed of Roses. Í öðru sæti endaði Ásbjörn Waage með Kiss-lagið Strutter og í þriðja sæti urðu flytjendurnir Malen Áskelsdóttir og Bjarkey Birta Gissurardóttir með lagið Russian Roulette sem hin barbadóska Rihanna samdi.

Dómarar voru þau Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, Sólveig Fjólmundsdóttir og Kristján Valgarðsson og segir í Fnv.is að þau hafi séð ástæðu til að veita viðurkenningu utan hefðbundinna verðlauna fyrir listamann kvöldsins. Þann heiður hlaut Hákon Magnússon Hjaltalín fyrir flutning sinn á laginu Working Class Hero.

Kynnar kvöldsins voru þær Matthildur Kemp Guðnadóttir og Elín Sveinsdóttir og stjórnuðu dagskránni með stakri prýði og héldu áhorfendum við efnið á milli atriða.

Meðfylgjandi myndband er af sigurvegara kvöldsins taka Bed of roses með hljómsveit hússins.

Fleiri fréttir