Ekki heimild til að manna afleysingar
Byggðaráð Húnaþings vestra tók á fundi sínum í síðustu viku undir áhyggju lögreglumanna á landshlutanum af stöðu löggæslumála í umdæminu. Fram kom að samkvæmt upplýsingum frá Pétri Björnssyni, formanni Lögreglufélags Norðurlands vestra, eru framundan námskeið hjá lögreglumönnum sem haldin eru í Reykjavík. Vegna fjárhagsstöðu eru menn settir á námskeiðin á þeim tíma sem þeir eiga að vera að vinna svo ekki þurfi að greiða þeim yfirvinnu. Þar af leiðandi er látið vanta á vaktirnar á meðan.
Á fundinum kom fram að beðið væri svara frá Páli Björnssyni lögreglustjóra á Norðurlandi vestra við fyrirspurn sveitarstjóra sem beðið er um upplýsingar um hvaða daga er að ræða varðandi námskeið starfsmanna embættisins í Reykjavík á vinnutíma og hvernig löggæsla verður skipulögð þá daga. Á fundinum sagði oddviti frá samskiptum sínum við Tómas Gíslason aðstoðarframkvæmdastjóra 112 en byggðarráð hefur bent á að að aðeins eitt neyðarnúmer sé á landinu og því mikilvægt að góð samhæfing sé a milli starfsmanna 112, fjarskiptamiðstöðvar og læknavaktarinnar, eins og segir í fundargerðinni.