Ekki lengdur afgreiðslutími á Grand-inn þrátt fyrir afléttingar dagsins

Þrátt fyrir afléttingar ætlum við að halda opnunartíma frá klukkan 20 til 01 en ekki hafa opinn bar til þrjú, segir Sigríður Magnúsdóttir, vert á Grand inn bar á Sauðárkróki, en eins og greint hefur verið frá verður öllum samkomutakmörkunum vegna Covid-19 aflétt um miðnættið.

Í Minnisblað sóttvarnalæknis um afléttingar innanlands segir að þrátt fyrir afléttingar og engar takmarkanir m.a. á skemmtistöðum, krám, spilasölum og spilakössum er mikilvægt að ýtrasta hreinlætis sé gætt og ekki síst á líkamsræktarstöðvum því þar eru sameiginlegir snertifletir margir hjá mörgum einstaklingum.

Fleiri fréttir