Ekki vísbendingar um fleiri smit

Mynd:Mast.is
Mynd:Mast.is

Matvælastofnun hefur tekið 3.947 sýni úr Tröllaskagahólfi frá því að fyrsta tilfelli riðu kom upp í hólfinu um miðjan október. Skiptast þau þannig að 170 sýni eru úr kindum sem felldar voru í tengslum við flutninga frá sýktum búum, 1.449 sýni eru úr sláturfé og 2.328 sýni úr fé sem skorið var niður. Frá þessu segir í frétt á vef Matvælasstofnunar.

Eftir að riða kom upp í fé í Tröllaskagahólfi í haust var greining á sláturfé úr því hólfi sett í forgang. Henni er nú lokið og nú hefst greining sýna úr fé sem skorið var niður á sýktum bæjum til að kanna útbreiðslu innan hjarðanna. Greining sýnanna gengur vel og ekki hafa fleiri riðutilfelli komið upp. Í tilkynningu frá MAST segir að þó riða hafi ekki greinst  á fleiri stöðum verði að taka þær niðurstöður með fyrirvara því næmi prófsins er 67% og þannig ekki hægt að útiloka frekari útbreiðslu. Sýnin voru send til greiningar hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum. 

„Matvælastofnun ítrekar að þrátt fyrir að ekki séu vísbendingar um frekara smit innan hólfsins þá er ekki hægt að útiloka það. Meðgöngutími riðu er 2-5 ár og verður tíminn að leiða í ljós hvort riða hefur dreift sér frekar. Rakning fjárflutninga á svæðinu heldur áfram og greining sýna úr kindum sem hafa verið fluttar milli bæja er í forgangi. Tilkynnt verður um smit þegar og ef það greinist.

Smitvarnir eru mikilvægar og fylgja verður takmörkunum sem gilda innan sýktra varnarhólfa. Bændur eru hvattir til að fylgjast vel með kindum sínum og tilkynna tafarlaust um kindur sem drepast eða grun um riðu. Í nýrri kynningu Matvælastofnunar á riðuveiki í sauðfé geta bændur fengið upplýsingar um sjúkdóminn og horft á myndbönd sem sýna einkenni fjár með riðu,“ segir í tilkynningu Matvælastofnunar.

Fleiri fréttir