Ellefu framúrskarandi fyrirtæki á Norðurlandi vestra

Crecitinfo birti nýlega lista yfir 857 framúrskarandi fyrirtækja á landinu sem eru um 2% íslenskra fyrirtækja. Creditinfo hefur síðastliðin níu ár unnið greiningar á ýmsum þáttum varðandi rekstur og stöðu fyrirtækja á Íslandi og er meginmarkmið greiningarinnar að verðlauna þau fyrirtæki sem standa sig vel og stuðla að bættu viðskiptaumhverfi. 

Fyrirtæki þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði til að komast á lista Creditinfo: 

  • Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3.
  • Ársreikningi skilað lögum samkvæmt fyrir 1. september.
  • Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo.
  • Framkvæmdastjóri er skráður í fyrirtækjaskrá RSK.
  • Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir króna 2017 (nýtt skilyrði).
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður síðustu þrjú rekstrarár.
  • Jákvæð ársniðurstaða síðustu þrjú rekstrarár.
  • Eiginfjárhlutfall hærra en 20% síðustu þrjú rekstrarár.
  • Eignir yfir 100 milljónir króna 2017, 90 milljónir króna 2016 og 80 milljónir króna 2015 (breytt skilyrði) .

Alls hlutu 11 fyrirtæki á Norðurlandi vestra viðurkenningu. Þau eru: 

Ámundakinn (Blönduósi)
FISK Seafood ehf. (Skagafirði)
Friðrik Jónsson ehf. (Skagafirði)
Kaupfélag Skagfirðinga svf. (Skagafirði)
Ó.K. Gámaþjónusta-sorphirða ehf. (Skagafirði)
Raðhús ehf. (Skagafirði)
Spíra ehf. (Skagafirði)
Steinull hf. (Skagafirði)
Steypustöð Skagafjarðar ehf. (Skagafirði)
Vinnuvélar Símonar ehf. (Skagafirði)
Vörumiðlun ehf. (Skagafirði)

Feykir óskar fyrirtækjunum til hamingju með viðurkenninguna. 

Nánari upplýsingar um Framúrskarandi fyrirtæki er að finna á heimasíðu Creditinfo https://www.creditinfo.is/framurskarandi/default.aspx

Fleiri fréttir