Þingeyingar og Skagfirðingar sameinast í söng
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
17.10.2025
kl. 10.45
Hausttónleikar Karlakórsins Hreims verða haldnir í Menningarhúsinu Miðgarði laugardaginn 18.okt 2025 kl. 15:00. Karlakórinn Heimir ætlar að kíkja á þá félaga í Hreim og syngja nokkur lög.
Gaman er að segja frá því að Karlakórinn Hreimur í Þingeyjarsveit á 50 ára afmæli í ár, en kórinn var stofnaður í janúar 1975, stjórnandi kórsins er Daníel Þorsteinsson.
Miðaverð á tónleikana er 6000 kr. og það verður posi á staðnum.
