Höfrungar í hópum

Þessi höfrungavaða var að leik á Skagafirðinum í byrjun mánaðarins þegar Höskuldur Hjálmarsson á Skáley SK 32 var þar á veiðum.  Að sögn Höskuldar er óvenjulegt að sjá svo marga höfrunga en líkleg ástæða sé loðnan sem þeir sækja í.  
Norsku loðnuskipin hófu einmitt veiðar sínar hér við land inni og út af Skagafirðinum en undanfarið hafa tugir norskra skipa stundað loðnuveiðar á íslenskum miðum.  Þá hafa mörg þeirra landað afla sínum hér og þannig fékk starfsfólk þeirra fyrirtækja sem frysta loðnu vinnu meðan á verkfalli sjómanna stóð. Í dag er hins vegar síðasti dagurinn sem norsku skipin mega veiða en eins og flestum er kunnugt eru íslensku skipin nú haldin til veiða og loðnuskipin farin að landa afla sínum.  
Gaman er að geta þess að í janúarmánuði var bátur Höskuldar, Skáley SK 32, aflahæstur báta undir 8 bt, í öðru sæti var Auður HU 94 og í fimmta sæti var Ásmundur SK 123. Nánar má lesa sér til um afla báta á http://aflafrettir.is/frettir.
Að sögn Höskuldar hafa veiðar dottið niður í febrúar þar sem þroskurinn étur yfir sig af loðnunni og lítur ekki við línunni. 

 

 

Höfrungar sem eltu okkur í blíðunni á Skáley SK 32 í Skagafirðinum fyrr í mánuðinum

Fleiri fréttir