Byrðuhlaup og 17. júní hátíðarhöld að Hólum í Hjaltadal
Á morgun 17. júní verður árlega Byrðuhlaupið haldið samhliða 17. júní hátíðarhöldum að Hólum í Hjaltadal. Keppt verður um titilinn Byrðuhlaupari ársins 2021. Hlaupið hefst klukkan 11:00 við Grunnskólann á Hólum og verður þaðan gengið eða hlaupið upp í Gvendarskál. Keppt verður í barnaflokki (13 ára og yngri) og fullorðinsflokki. Það verður frítt í hlaupið, allir velkomnir og í Gvendarskál verður boðið upp á hressingu.
Að hlaupi loknu fer fram skrúðganga frá Hólaskóla að Grunnskólanum að Hólum. Þar verða veitt verðlaun fyrir Byrðuhlaupið, grillaðar pylsur og farið í hina ýmsu leiki eins og t.d. reipitog og pokahlaup.
/SMH