Fann systkini sín eftir áratuga aðskilnað

Sylvía Magnúsdóttir á Hlíðarenda í Óslandshlíð var ung þegar hún komst að því að hún væri ættleidd. Blóðforeldrar hennar reyndust þýskir og um fertugt fór hún að leita systkina sinna í annað sinn, eftir árangurslausa tilraun nærri aldurfjórðung fyrr.

Í dag hefur hún hitt tvö af systkinum sínum og hefur einnig samband við systurdóttur sína sem í sumar heimsótti hana í Skagafjörðinn. Sylvía sagði blaðamanni Feykis sögu sína á dögunum og viðtal við hana er í nýjasta tölublaði Feykis sem kom út í dag.

Fleiri fréttir