Fé úr Fljótum sótt í Hvanndali

Féð komið um borð í björgunarbát. Myndir: Halldór Hálfdánarson.
Féð komið um borð í björgunarbát. Myndir: Halldór Hálfdánarson.

Eftir 30 ára hlé gerði fé sig heimakomið í hinum hrikalegu Hvanndölum milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar, sem fyrrum voru eitt einangraðasta byggðarlag landsins. Um var að ræða 16 kindur úr Fljótum og líklega hefur fé úr Fljótum aldrei farið þangað áður svo vitað sé. 

Hvanndalir eru umkringdir tæplega 700 metra háum fjöllum á alla kanta, nema til norðurs en þar tekur Atlantshafið við. Hvanndalir voru keyptir af Hvanneyrarhrepp árið 1896 í þeim eina tilgangi að leggja byggð þar niður. Lending þar er mjög erfið, tæplega 20 metra hár bakki og þarf að styðjast við keðju til að komast upp. Ekki er hægt að ganga fjöruna nema fara upp í svokallaðar Hvanndalaskriður sem eru alls ekki fyrir lofthrædda og raunar stórhættulegar yfirferðar. 

Hvanndalir eru umkringdir tæplega 700 metra háum fjöllum á alla kanta, nema til norðurs en þar tekur Atlantshafið við.

Eina leiðin til að komast í Hvanndali er að fara sjóleiðina og nutu Fljótamenn aðstoðar björgunarsveitarinnar Stráka á Siglufirði, sem lagði til björgunarskipið Sigurvin. Ásamt sveitinni komu fjölmargir Siglfirðingar og Ólafsfirðingar til aðstoðar. Sem nærri má geta eru Fljótamenn þakklátir öllum sem aðstoðuðu við smölunina fyrir hjálpina.

Höfðu menn haft áhyggjur af því hvernig gengi að koma fénu niður í fjöruna en bakkinn var nánast laus við svell og gekk það greiðlega. Féð var síðan selflutt í gúmmíbát frá björgunarsveitinni Tindi í Ólafsfirði. Um var að ræða sjö ær ásamt lömbum, alls sextán kindur.  /KSE

Fleiri fréttir