Fimmtíu ára búfræðingar í heimsókn

Þann 29. ágúst komu 50 ára Hólanemar í heimsókn ásamt mökum og samstarfsfólki frá námsárunum. Á vef Hólaskóla segir að eftir skemmtilegt spjall, hlátrasköll og myndatöku var rennt við í aðstöðu hestafræðideildar Háskólans á Hólum og skeggrætt um gamla tíma og nýja.
Að loknu kaffisamsæti, afhentu nemendur skólanum rausnarlega gjöf til styrktar kaupum á upplýsingaskjá fyrir háskólann.
„Skjánum hefur verið valinn staður í anddyri skólans og verður honum ætlað að verða gestum og gangandi til leiðbeiningar um starfsemi háskólans og Hólastaðar. Háskólinn á Hólum þakkar höfðinglega gjöf og hlýhug í garð skólans,“ segir á vefnum.