Fjöldi námskeiða á vorönn Farskólans
Fjöldi spennandi námskeiða verða í boði hjá Farskólanum á vorönn. Meðal þeirra eru tólf vefnámskeið sem félagsmönnum stéttarfélaganna Öldunnar, Samstöðu, Kjalar, Sameykis og Verslunarmannafélags Skagafjarðar stendur til boða að sækja, sér að kostnaðarlausu.
Námskeiðin eru að sjálfsögðu öllum opin og bendir Farskólinn öðrum en félagsmönnum í þessum félögum að skoða rétt sinn hjá sínu félagi.
Hlekk beint inn á skráningasíðu þessara námskeiða er að finna hér: https://farskolinn.is/http:/new.farskolinn.is/stettarfelog/