Fjörtíu prósent kjörsókn klukkan fjögur

Fyrstu tölur frá Sauðárkróki fóru af stað í Borgarnes um klukkan fjögur í dag. Mynd: KSE
Fyrstu tölur frá Sauðárkróki fóru af stað í Borgarnes um klukkan fjögur í dag. Mynd: KSE

Farið var af stað með fyrstu atkvæðin frá Sauðárkróki í Borgarnes klukkan fjögur í dag. Þá höfðu um 40% þeirra 2983 kjósenda sem eru á kjörskrá á Sauðárkróki kosið á kjörfundi í Bóknámshúsi FNV. Að sögn Hjalta Árnasonar, formanns yfirkjörstjórnar á Sauðárkróki, er kjörsókn frekar dræm miðað við síðustu kosningar.

Snjókoma og slabb hafa einkennt veðurfarið í Skagafirði í dag. Nú eru flestir vegir greiðfærir á Norðurlandi vestra en þó er snjóþekja á Vatnsskarði og hálkublettir á Þverárfjalli. Eins og fram kom í frétt hér á vefnum í morgun loka síðustu kjörstaðir kl. 22 en kosningavökur sjónvarpsstöðvanna byrja um það leyti. Blaðamaður Feykis heimsótti kosningaskrifstofur á Sauðárkróki í dag og voru meðfylgjandi myndir teknar þar, sem og á kjörstað í Bóknámshúsi FNV á Sauðárkróki.

 

Fleiri fréttir