Flestir vegir greiðfærir
Flestir vegir á Norðurlandi vestra eru nú greiðfærir eftir hlýindi og vindasamt veður undanfarna tvo sólarhringa. Þó eru hálkublettir á Vatnsnesi, í Hrútafirði og á Svínvetningabraut.
Vindhraði er á bilinu 7 til 14 m/s , hvassast við Stafá, þar sem vindhraðinn hefur þó gengið mikið niður eftir óveður þar síðustu tvo sólarhringa. Hitastigið er á bilinu 0 til 4 gráður.
Veðurspáin fyrir Strandir og Norðurland vestra næsta sólarhringinn hljóðar svo: Suðvestan 8-13 og él, hægari og styttir upp síðdegis. Snýst í austan 5-10 með rigningu eða slyddu í kvöld. Hiti um eða yfir frostmarki.