Fóður hækkar á morgun
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
10.05.2011
kl. 07.50
Miðvikudaginn 11. maí 2011 hækkar allt tilbúið fóður hjá Fóðurblöndunni hf. um 4 – 8% misjafnt eftir tegundum. Ástæða hækkunarinnar eru hækkun á verði aðfanga á erlendum mörkuðum og veiking íslensku krónunnar.
Fleiri fréttir
-
Sex réttir með sérvöldum vínum á Sauðá
Vínfræðingurinn Sóley Björk Guðmundsdóttir og veitingahúsið Sauðá ætla að slá upp vín- og matarveislu laugardaginn 14. nóvember nk. Þar ætla þau að para saman sælkerarétti úr úrvalseldhúsinu á Sauðá og sérvalin handverksvín frá Katalóníu á Spáni.Meira -
Magnús sveitarstjóri með fasta viðtalstíma
Magnús Barðdal sveitarstjóri verður með fasta viðtalstíma í Skagafirði annan hvern föstudag, ýmist í Varmahlíð, á Hofsósi og Sauðárkróki frá og með 6. nóvember. Í frétt á vef Skagafjarðar segir að þeir sem áhuga hafi séu hvattir til að nýta sér þennan möguleika og eiga gott spjall við Magnús um þjónustu og málefni sveitarfélagsins og koma á framfæri ábendingum eða ræða einstök mál.Meira -
Tillaga um einn landsmótsmótsstað felld
Á nýafstöðnu landsþingi hestamanna sem haldið var í Hveragerði 30. – 31. okt. var lögð fram tillaga frá hestamannafélögunum á höfuðborgarsvæðinu um að landssambandið skildi stefna að því að fundinn yrði einn landsmótsstaður til frambúðar. Þó það væri ekki sagt beinum orðum var það augljóst að þessi staður skildi vera Víðidalur í Reykjavík.Meira -
Guðni Bent á skotskónum með Íslandi
Landslið Íslands í U15 karla vann flottan 4-1 sigur gegn Grikklandi í síðasta leik liðsins á UEFA Development móti í Austurríki en áður hafði liðið gert jafntefli við Austurríki en tapað fyrir Spánverjum. Líkt og Feykir sagði frá fyrir helgi er Guðni Bent Helgason úr Tindastóli með liðinu og hann gerði sér lítið fyrir og skoraði fjórða mark Íslands í leiknum gegn Grikkjum.Meira -
Kirkjan heim
Það er stór dagur fyrir Silfrastaðakirkju því eftir fimm ára dvöl hjá Trésmiðjunni Ýr, verður hún hífð á vörubílspall og flutt heim í Silfrastaði. Þetta mun gerast núna á milli 10 og 11.Meira
