Forkeppni Stræðfræðikeppni framhaldsskólanema þriðjudag
Forkeppnin í Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema verður haldin þriðjudaginn 7. október í framhaldsskólum landsins og í FNV hefst hún kl. 9:30.
Á vef FNV kemur fram að keppnin fer fram á tveimur stigum. Neðra stig er fyrir nemendur á fyrstu tveimur námsárum í skólanum og efra stig fyrir lengra komna. Þátttakendur á neðra stigi fá tvær klukkustundir til að glíma við verkefni sín, en þátttakendur á efra stigi tvær og hálfa klukkustund.
„Nemendur sem best standa sig í forkeppninni fá þátttökurétt í úrslitakeppninni í vor. Að lokinni forkeppni í haust verða jafnframt valdir keppendur sem taka þátt fyrir Íslands hönd í Eystrasaltskeppni í stærðfræði árið 2014,“ segir á vefnum.