Frá grunni til afkasta
Kennslusýning reiðkennaranema Hólaskóla verður haldin í reiðhöllinni Borganesi í dag, föstudaginn 24. maí, kl. 20:00.
Farið verður í uppbyggingu reiðhests stig af stigi, frá grunni til afkasta. Unnið verður út frá þjálfunarstigum Hólaskóla.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Hólar.is segir frá þessu.
