Framkvæmdir hefjast við Nestún á Sauðárkróki

Frá undirritun samnings. F.v Atli Gunnar Arnórsson frá Stoð, Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri, Ásmundur Pálmason frá Steypustöð Skagafjarðar, Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri, Veitu og framkvæmdasviðs og Ingvar Páll Ingvarsson tæknifræðingur. Mynd: Svf. Skagafjörður.

Sveitarfélagið Skagafjörður og Steypustöð Skagafjarðar hafa skrifað undir samning að undangengnu útboði um framkvæmdir við nýja götu á Sauðárkróki, Nestún, sem er staðsett fyrir ofan Laugatún og liggur samsíða henni, með aðkomu af Túngötu. 

Gert er ráð fyrir 14 nýjum lóðum fyrir einbýlishús við Nestún, 7 lóðum sitthvorum megin við götuna. Austan götu er gert ráð fyrir tveggja hæða húsum, en einnar hæðar húsum vestan götu.

Framkvæmdirnar sem Steypustöð Skagafjarðar taka að sér snúa að gatnagerð og fráveitu við Nestún og munu framkvæmdir hefjast á næstu dögum. Verklok eru í byrjun október og er áætlað að lóðir við Nestún verði auglýstar með haustinu.

/SMH

Fleiri fréttir