Frestur veittur til að nálgast eigur á læstu svæði

Eins og Feykir hefur fjallað um stendur Svf. Skagafjörður fyrir sérstöku hreinsunarátaki á Hofsósi. Vegna verkfallsaðgerða og annarra óviðráðanlegra orsaka hefur það dregist að farið yrði í hreinsun á svæðinu sem um ræðir í nágrenni frystihúss Fisk á Hofsósi.

Að sögn Sigríðar Magnúsdóttur, sem er formaður umhverfis- og samgöngunefndar og formaður heilbrigðiseftirlitsnefndar hjá Svf. Skagafirði, verður þeim munum sem fjarlægðir verða af svæðinu komið í geymslu á læstu svæði í 45 daga og eigendum gefinn kostur á að nálgast þá þar, gegn því að greiddur verður kostnaður vegna hreinsunar. Þeir sem hyggjast nýta sér það þurfa að setja sig í samband við Ómar Kjartansson hjá ÓK gámaþjónustu sem hefur lykla að svæðinu.

Fleiri fréttir