Fullt hús hjá Sögufélaginu

Vel var mætt á útgáfuteiti Skagfirðingabókar sl. laugardag sem fram fór á Mælifelli á Sauðárkróki en þá var því fagnað að 50 ár eru liðin frá því að fyrsta bókin í ritröðinni var gefin út. Jafnframt var sú nýjasta að koma út sú 37. í röðinni og var henni gerð góð skil.
Hjalti Pálsson formaður Sögufélags Skagfirðinga bauð gesti velkomna og setti hófið og kynnti félaga sinn á svið, Sölva Sveinsson, sem sagði frá upphafi Skagfirðingabókar en þá tóku þeir sig saman Kristmundur Bjarnason á Sjávarborg, Hannes Pétursson skáld og Sigurjón Björnsson sálfræðingur, og ákváðu að stofna rit sem birta skyldi greinar úr sögu og mannlífi Skagafjarðar. Það gerðu þeir upp á eigin spýtur en til hliðar við Sögufélagið.
Aðalefni nýjustu bókarinnar er um kaupmannshjónin Harald Júlíusson og Guðrúnu Bjarnadóttur, rituð af Sölva, sem sagði gestum frá vinnu sinni við samantektina og las upp úr bókinni. Einar Kristinn Guðfinnsson, fráfarandi forseti Alþingis og dóttursonur Haraldar og Guðrúnar, rifjaði upp eitt og annað frá þeim tíma er hann var hjá afa og ömmu á Sauðárkróki. Sagði hann það mikinn heiður fyrir fjölskyldu og afkomendur kaupmannshjónanna að þessi saga skyldi rata í Skagfirðingabók og þakkaði Sölva fyrir gott verk.
Skagfirðingabók er ekki seld í bókabúðum, en félagsmenn Sögufélagsins fá hana í áskrift og er andvirði bókarinnar félagsgjaldið. Þeir sem áhuga hafa að eignast bókina geta sent tölvupóst á hjaltipalsson@simnet.is og saga@skagafjordur.is eða haft samband við Hjalta Pálsson á annan hátt.
Myndir : PF.