Fulltrúar flokkanna á fundi um ferðaþjónustuna í Norðvesturkjördæmi

Staða og framtíð ferðaþjónustunnar verða til umræðu á opnum fundi sem Samtök ferðaþjónustunnar halda með fulltrúum flokkanna í Norðvesturkjördæmi fimmtudaginn 13. október næstkomandi.

Fundurinn verður haldinn í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi og hefst hann kl. 20. Á fundinum verður kastljósinu beint að viðfangsefnum ferðaþjónustunnar, sem á skömmum tíma er orðin umsvifamesta atvinnugrein þjóðarinnar. Rætt verður við fulltrúa flokkanna í kjördæminu um leiðir til að mæta örum vexti atvinnugreinarinnar í sátt við náttúruna og íbúana.

Þeir oddvitar flokkanna sem taka þátt í fundinum eru Eva Pandóra Baldursdóttir Pírötum, Gunnar Bragi Sveinsson Framsóknarflokki, Gylfi Ólafsson Viðreisn, Haraldur Benediktsson Sjálfstæðisflokki, Inga Björk Bjarnadóttir Samfylkingu, Lilja Rafney Magnúsdóttir Vinstri grænum og Valdimar Valdemarsson Bjartri framtíð.

Allir eru velkomnir á fundinn og það verður heitt á könnunni. Fundurinn verður sýndur beint á vefsíðu SAF og um næstu helgi verður upptöku af honum sjónvarpað hjá N4.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir