Fundur í Varmahlíð að ósk íbúa vegna aurskriðu
Íbúar í Varmahlíð, sem búa í námunda við aurskriðuna sem féll þann 29. júní sl., sendu sveitastjórn Svf. Skagafjarðar bréf dagsett 8. júlí 2021. Erindi bréfsins varðar íbúafund sem haldinn var í Varmahlíð þann 7. júlí sl. og óskað er eftir því að sveitastjórnin komi til fundar við íbúana á ný og veiti þeim upplýsingar um stöðuna eigi síðar en 14 dögum frá dagsetningu bréfsins.
Einnig óska bréfritarar eftir því að þeir fái að fylgjast með ástandinu og þeim ákvörðunum sem sveitarfélagið tekur hverju sinni og varða Varmahlíð.
Byggðarráð, sem hefur fullnaðarheimild til að afgreiða mál sveitastjórnar vegna sumarleyfis hennar, ákvað á fundi sínum í dag, 14. júlí, að haldinn yrði íbúafundur í næstu viku. Fundurinn mun verða auglýstur nánar seinna í vikunni.
Bókun fundarins og bréf frá íbúum í Varmahlíð má lesa hér:
„Lagður fram tölvupóstur dagsettur 8. júlí 2021 frá íbúum eftirtaldra fasteiga í Varmahlíð; Laugarvegi 11, 13, 15 og 17, Laugahlíð, Úthlíð, Norðurbrún 3, 5 og 9. Varðar erindið íbúafund sem haldinn var í Varmahlíð þann 7. júlí s.l. vegna aurskriðu sem féll í Varmahlíð 29. júní s.l. Óska bréfritarar eftir því að sveitarstjórnin komi til fundar við íbúana og veiti upplýsingar um stöðuna ekki síðar en 14 dögum frá dagsetningu bréfsins. Einnig er farið fram á að tryggt sé að þeir fái að fylgjast með ástandinu á hverjum tíma og fái upplýsingar um hvaða áætlun sveitarfélagið hefur til að bregðast við þessu ástandi.
Byggðarráð samþykkir að haldinn verði fundur í næstu viku með íbúum Varmahlíðar.
Ólafur Bjarni Haraldsson óskar bókað að hann taki ekki þátt í afgreiðslu þessa dagskrárliðar.“
/SMH