Fundur um framtíð landsmóts hestamanna

Landssamband Hestamannafélaga og Bændasamtök Íslands standa fyrir vinnufundi um framtíð Landsmóta hestamanna. Markmið vinnufundarins er að félagsmenn komi saman til að móta stefnu varðandi Landsmót. Fundurinn verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal (sal E), laugardaginn 17. okt. nk. kl. 10.00 – 15.00
Á vef Landssambands hestamannafélaga segir að hvert hestamannafélag hafi rétt á að senda tvo fulltrúa á fundinn, en þau félög sem hafa 500 félaga eða fleiri geta sent þrjá fulltrúa.
„Við viljum hvetja fundarmenn til að að koma undirbúna til fundarins og huga sérstaklega að þeim viðfangsefnum og spurningum sem verða til umfjöllunar á fundinum,“ segir á vefnum.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
10.00 SETNING VINNUFUNDAR
10.05 DAGSKRÁ OG VINNULAG Fundarstjóri: Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur
10.15 ERINDI
10.45 - 14.50 HÓPAVINNA Unnið verður í fljótandi hópum að því að ræða neðangreind efni og svara spurningum þeim tengdum. Gert er ráð fyrir 30 mínútna umræðum um hvert mál í hópunum og 15 mínútum í kynningu á niðurstöðum. Sérstakir hópstjórar hafa yfirumsjón með starfi hópanna.
Viðfangsefni hópanna eru:
- Tilgangur Landsmóta (kl. 10.45-11.30)
- Fyrir hverja er LM
- Hverju viljum við ná fram
- Viljum við fjölga gestum – erlendum og innlendum
- Keppendur á Landsmótum (kl. 11.40-12.25)
- Hverjir hafa þátttökurétt
- Á að breyta úrtökum
- Á að skipta upp kynbóta og gæðingakeppninni
12.30-13.15 MATARHLÉ
- Dagskrá og afþreying á Landsmótum (kl. 13.15-14.00)
- Á að hafa aðra afþreyingu en hestamennsku á LM
- Á að stytta/lengja dagskrá
- Á að breyta tímasetningunni
- Umgjörð Landsmóta (kl. 14.10-14.55)
- Eigum við að hafa einn þjóðarleikvang íslenska hestsins
- Þurfa öll LM að vera eins
14.55 STUTT SAMANTEKT
15.00 VINNUFUNDI SLITIÐ