Fyrsta flokks ull á rúmar 700 krónur
Í sumar var auglýst í Bændablaðinu eftir umsóknum um stuðning til söfnunar ullar og barst ein umsókn frá ÍSTEX hf. sem er reiðubúið til þess að uppfylla öll skilyrði verklagsreglna um ráðstöfun fjár vegna ullarnýtingar. Fyrirkomulag um greiðslur til bænda er þannig háttað að fjármunum til ullarnýtingar er ráðstafað að a.m.k. 85% til bænda og fjárhæðinni deilt niður hlutfallslega eftir gæðum á hvert kíló hreinnar ullar.
Miðað er við alla innlagða ull á tímabilinu 1. nóvember – 31. október samkvæmt verðskrá sem Matvælastofnun hefur samþykkt og gerir Matvælastofnun síðan upp við seljanda ullar, Ístex hf., eigi síðar en 1. mars 2017.
Verðskrá vegna beingreiðslna til bænda hefur verið samþykkt af Matvælastofnun og fjárhæðir áætlaðar og birtrar með fyrirvara um breytingar á fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2017.
Nr |
Gæðaflokkur |
Áætlað verð |
Stuðlar |
10 |
H- Lamb |
708 |
1,40 |
11 |
H-1 Flokkur |
683 |
1,35 |
12 |
H-2 Flokkur |
455 |
0,90 |
13 |
H-2 Lamb (lítið gölluð) |
683 |
1,35 |
14 |
M-Svart |
607 |
1,20 |
15 |
M-Grátt |
607 |
1,20 |
16 |
M-Mórautt |
607 |
1,20 |
22 |
M-2 Flokkur |
152 |
0,30 |
23 |
M-3 Flokkur |
||
24 |
Úrkast |