Fyrstu kjörfundir hófust klukkan níu í morgun
Fyrstu kjörfundir á Norðurlandi vestra hófust klukkan níu í morgun. Norðvesturkjördæmi nær frá Akraneskaupstað til Akrahrepps og skulu þar vera sjö kjördæmissæti og eitt jöfnunarsæti. Tíu stjórnmálaflokkar bjóða fram lista í Norðvesturkjördæmi en það eru A-listi Bjartrar framtíðar, B-listi Framsóknarflokks, C-listi Viðreisnar, D-listi Sjálfstæðisflokks, E-listi Íslensku þjóðfylkingarinnar, F-listi Flokks fólksins, P-listi Pírata, S-listi Samfylkingar, T-listi Dögunar og V-listi Vinstri grænna. Kjörfundir eru sem hér segir, á Norðurlandi vestra:
Austur-Húnavatnssýsla:
Kjörstaður á Blönduósi er í Íþróttamiðstöðinni. Gengið er inn frá Melabraut til móts við Húnabraut 4 (Samkaup). Kjörfundur hófst klukkan 10.
Kjörstaður á Skagaströnd er í Fellsborg. Kjörfundur hófst klukkan 10.
Kjörstaður í Skagabyggð er í Skagabúð. Kjörfundur hefst klukkan 12.
Kjörstaður í Húnavatnshreppi er í Húnavallaskóla á Húnavöllum (stofu 1). Kjörfundur hófst klukkan 11 og er stefnt að því að honum ljúki klukkan 19.
Skagafjörður:
Kjördeild í Félagsheimilinu Skagaseli
Þar kjósa íbúar fyrrum Skefilstaðahrepps. Kjörfundur hefst kl. 12.
Kjördeild í Bóknámshúsi FNV á Sauðárkróki
Þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs- og Rípurhreppa. Kjörfundur hófst kl. 9.
Kjördeild í Félagsheimilinu Árgarði. Þar kjósa íbúar fyrrum Lýtingsstaðahrepps. Kjörfundur hófst kl. 12.
Kjördeild í Grunnskólanum á Hólum. Þar kjósa íbúar fyrrum Hóla-og Viðvíkurhrepps. Kjörfundur hófst kl. 10.
Kjördeild í Félagsheimilinu Höfðaborg, Hofsósi. Þar kjósa íbúar fyrrum Hofshrepps. Kjörfundur hófst kl. 10.
Kjördeild í Sólgarðaskóla. Þar kjósa íbúar fyrrum Fljótahrepps. Kjörfundur hefst kl. 12.
Kjördeild í Varmahlíðarskóla. Þar kjósa íbúar fyrrum Staðar- og Seyluhrepps. Kjörfundur hófst kl. 10.
Kjörfundur í Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki. Kjörfundur hefst kl. 13.
Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá Sýslumanni á Sauðárkróki kl. 16-18 á kjördag. Yfirkjörstjórn er með aðstöðu í Bóknámshúsi FNV.
Vestur-Húnavatnssýsla
Kjörstaður í Húnaþingi vestra er í Grunnskóla Húnaþings vestra á Hvammstanga, 1. hæð. Kjörfundur hófst klukkan 9.
Um lengd kjörfunda:
Kjörfundi má slíta átta klukkustundum eftir að kjörfundur hefst, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði. Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórn er sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin síðan kjósandi gaf sig síðast fram. Kjörfundi skal slíta eigi síðar en kl. 22:00.
Yfirkjörstjórn í Borgarnesi:
Meðan kosning fer fram í dag verður aðsetur yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á Hótel Borgarnesi, Egilsgötu 16, Borgarnesi, þar sem talning atkvæða fer fram að loknum kjörfundi klukkan 22.00. Í yfirkjörstjórn kjördæmisins eru Kristján G. Jóhannsson, Ríkarður Másson, Guðný Ársælsdóttir, Guðrún Sighvatsdóttir og Björg Gunnarsdóttir