Gæðastýring í hrossarækt
Á dögunum kom út ársskýrsla Gæðastýringar í hrossarækt. Þar kemur fram að nú séu liðin 15 ár síðan Landgræðslan tók að sér að annast landnýtingarþátt gæðastýringar í hrossarækt. Verkefnið snýst um að þeir hrossabændur sem þess óska fái staðfest með formlegum hætti að landnýting þeirra sé með sjálfbærum hætti. Þetta kemur fram í Fréttaskoti nr. 7 sem Landgræðslan gaf út í síðustu viku.
Árið 2014 stóðust fjörtíu hrossabú úttektarkröfur landnýtingarþáttarins. Tilgangurinn er að auka fagmennsku í meðferð beitarlands og auka velferð hrossa á viðkomandi búum. Í fréttabréfinu segir að landlæsi bænda á þátttökubúunum hafi aukist og meðferð þeirra á beitarlandi batnað.
Í fréttabréfinu kemur jafnframt fram að þeir sem óska frekari upplýsinga geti haft samband við Bjarna Maronsson héraðsfulltrúa á Norðurlandi vestra. Bjarni er með síma 4888 3049 og 856 0235 og netfang hans er bjarni@land.is