Gamaldags söngleikur með léttu ívafi
Leikhópurinn Frjósamar freyjur og frískir menn setur söngleikinn „Það er að koma skip“ á svið í Sæluvikunni. Sýningarnar verða tvær, annars vegar í Félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi þegar verkið verður frumsýnt sunnudaginn 26. apríl kl. 17:00 og hins vegar í Menningarhúsinu Miðgarði 30. apríl kl. 20:30.
Miðasala fer fram við inngang. Aðgangseyrir er 2000 kr. og vakin er athygli á því að ekki er tekið við greiðslukortum.
„Að þessu leikverki stendur skemmtilegt fólk hérna úr sveitinni, Viðvíkur- og Hólahreppi, Óslandshlíð og Blönduhlíð og þrír vestan Vatna - alls 27 leikendur,“ sagði Anna Þóra Jónsdóttir, höfundur söngleiksins, þegar Feykir ræddi við hana á dögunum.
„Ég fékk flöskuskeyti,“ segir hún kímin. „Nei, ég er að djóka. Ég fór á námskeið hjá Þorgrími Þráinssyni í Skapandi skrifum og þetta er afrakstur þess,“ sagði Anna Þóra um tilurð verksins. Þar er ekki einungis leikverkið sem er frumsamið, heldur einnig lög og textar söngleiksins, en það var enginn annar en Geirmundur Valtýsson sem tók að sér lagasmíð við texta Önnu Þóru og eru þau átta talsins.
Viðtalið við Önnu Þóru í heild sinni má nálgast í Feyki sem kom út í dag.