Ganga Ferðafélags Skagfirðinga á Kaldbak

Ferðafélag Skagfirðinga stendur fyrir gönguferð á fjallið Kaldbak á laugardaginn kemur, 28. júlí, ef veður leyfir. Fjallið Kaldbakur er í landi Sólheima í Sæmundarhlíð og er hæsta fjallið á því svæði. Gangan er frekar erfið og fjallið grýtt. Því eru góðir gönguskór nauðsynlegir. 

Farið verður með einkabílum fram að Sólheimum og verður gengið þaðan. Brottför er frá Faxatorgi á Sauðárkróki klukkan 10:00. 

Fararstjóri í ferðinni er Trond Olsen.

Á heimasíðu Ferðafélags Skagafjarðar kemur fram að þann 8. ágúst er fyrirhuguð ferð um Kálfárdal að skálanum Trölla og þann 25. ágúst verða gGötur kvenfélagsins Heklu um Digramúla á Skaga skoðaðar.

 

Fleiri fréttir