Gátt fyrir rafræna reikninga opnuð á heimasíðu Svf. Skagafjarðar
Sveitarfélagið Skagafjörður opnaði nýverið gátt fyrir rafræna reikninga á heimasíðu sinni og segir þar að um sé að ræða aðgerðir til að reyna að koma öllum reikningum, sem berast til sveitarfélagsins í rafrænt form.
Á síðu sveitarfélagsins segir að í gáttinni geti seljendur á vörum og þjónustu, sem ekki senda rafræna reikninga beint úr sölukerfi sínu, sent reikning á rafrænu formi til sveitarfélagsins en gáttina má finna í hægri dálki á forsíðu skagafjordur.is. Ekki er þörf á að senda pappírsreikning til sveitarfélagsins þegar búið er að senda reikninginn inn rafrænt í gegnum gáttina.