Gengið í Trölla
Ferðafélag Skagfirðinga verður með fyrstu göngu sumarsins á morgun, fimmtudaginn 24. júní. Mæting er við Arion banka kl. 17:00, þar sem sameinast verður í bíla. Gengið verður í Trölla og þar mun ferðafélagið bjóða upp á grillaðar pylsur. Gestir koma með sinn eigin drykk.
Heildarvegalengd göngunnar er um 8 - 10 km. Gangan er tiltölulega auðveld en heildartímalengd er c.a 5 klst. Ferðin er opin öllum sem hafa gaman af því að ganga og vera í góðum félagsskap. Frítt er í ferðina. Mælum með því að vera í góðum skóm. Það þarf að fara yfir mýri á leiðinni.
Skráning í ferðina HÉR
Hvetjum ykkur til að fylgja Ferðafélagi Skagfirðinga á Facebook https://www.facebook.com/ferdafelag.skagfirdinga
Vonandi sjáum við sem flesta.
/Fréttatilkynning