Georgette Leah Burns deildarstjóri við ferðamáladeild
Þann 1. ágúst sl. tók Dr. Georgette Leah Burns við starfi deildarstjóra ferðamáladeildar Háskólans á Hólum. Hún hefur hlotið menntun í mannfræði og ferðamálum, og býr auk þess yfir mikilli reynslu af kennslu og rannsóknum.
Undanfarið ár hefur Leah, sem er Ástrali að þjóðerni, búið á Hvammstanga ásamt fjölskyldu sinni. Þar hefur hún stundað rannsóknir við Selasetur Íslands, auk þess að kenna einstök námskeið við Háskólann á Hólum. Leah tekur við af Dr. Guðrúnu Helgadóttur, en skipunartími hennar rann út 1. ágúst.