Gönguhópur Blönduóss á Spákonufell

„Gönguhópur Blönduóss er hugsaður sem óformlegur hópur fólks sem deilir því áhugamáli að ganga sér til ánægju og yndisauka. Allir eru velkomnir í göngur,“ segir Róbert Daníel Jónsson, annar forsprakki hópsins. Hann segir að ekki sé boðið upp á skipulagða leiðsögn í þessum göngum, en allir hvattir til að deila fróðleik sem þeir búa yfir.

Gönguhópurinn var stofnaður 29. september 2019 af þeim hjónum, Róbert Daníel Jónssyni og Ernu Björgu Jónmundsdóttur sem hingað til hafa skipulagt allar göngur hópsins sem eru orðnar ansi margar þrátt fyrir smá stopp vegna Covid 19.

„Síðasta gangan var á sunnudaginn 7. mars en þá gengum við á Spákonufell (639m), bæjarfjall Skagastrandar. Það mættu sjö göngumenn í þá göngu, fjórir frá Blönduósi og þrír frá Skagafirði. Veðrið var milt og gott þegar við hófum gönguna frá Golfskálanum á Skagaströnd. Skýjahula var yfir toppi fjallsins þegar við lögðum af stað en hvarf svo rétt áður en við gengum upp á Moldhrygg og var skyggnið eftir það stórkostlegt.

Vetrargöngur á fjöll geta verið frábær upplifun í svona fallegum skilyrðum,“ segir Róbert en leiðin upp á topp er um 3,3 km.

„Við gengum svokallaða Norðurleið (A), upp Moldhrygg og þaðan upp á topp. Við hvetjum fólk til að fylgjast með og taka þátt,“ segir hann og bendir á heimasíðuna þar sem hægt er að nálgast frekari upplýsingar og fréttir af göngum hópsins, sjá HÉR

Hér má svo finna fleiri myndir úr sunnudagsgöngu á Spákonufell sl. sunnudag.

 

 

Fleiri fréttir