Greiddu 12 milljónir með sjúkraflutningum á síðasta ári

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur sagt upp samningi við Heilbrigðisstofnun Norðurlands um sjúkraflutninga á svæði stofnunarinnar, með árs fyrirvara. Byggðarráð samþykkti uppsögnina með tölvupóstum fyrir 31. desember 2018 en á síðasta sveitarstjórnarfundi kom fram að sveitarfélagið sé reiðbúið til viðræðna um gerð nýs samnings.  

„Ástæða þess að Sveitarfélagið Skagafjörður sagði upp samningi við Heilbrigðisstofnun Norðurlands um sjúkraflutninga á svæði stofnunarinnar er sú að aukning sjúkraflutninga hefur verið langt umfram forsendur þess samnings sem var í gildi. Samningnum var því sagt upp og fellur úr gildi við árslok 2019,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri.

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur lýst því yfir við framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Norðurlands að það sé reiðubúið til viðræðna um gerð nýs samnings þar sem forsendur um verulega aukinn fjölda sjúkraflutninga á liðnum árum eru m.a. hafðar til grundvallar.

Sigfús segir að sú fjárhæð sem Sveitarfélagið Skagafjörður greiddi með sjúkraflutningum á árinu 2018 hafi verið tæpar 12 m.kr. en á árinu 2019 stefnir upphæðin í liðlega 14 m.kr.

Fleiri fréttir