Grindavíkurliðið sterkara í Smáranum
Ekki náðu lið Tindastóls að tryggja sér sæti í úrslitum VÍS bikarsins að þessu sinni. Strákarnir töpuðu gegn KR í naglbít eins og áður hefur komið fram. Í gær mættu Stólastúlkur toppliði Grindavíkur í Smáranum og var leikurinn í járnum fram yfir miðjan þriðja leikhluta en þá tók Abby Beeman yfir leikinn og fór svo að Grindvíkurliðið vann að. lokum 25 stiga sigur, 74-99.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Öxnadalsheiði ófær vegna óveðurs
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 24.03.2026 kl. 09.12 oli@feykir.isSamkvæmt upplýsingum á umferðarsíðu Vegagerðarinnar er Öxnadalsheiðin ófær sem stendur vegna óveðurs en víðast hvar í nágrenni eða við Tröllaskagann gengur á með éljum og snjóþekja er á vegum í nágrenni Akureyrar. Sama gildir um veginn frá Sauðárkróki. til Hofsóss. Þjóðvegur 1 er ýmist greiðfær eða með hálkublettum.Meira -
100% ánægja með leikskólann Barnaból
Heildaránægja foreldra sem eru með börn á leikskólanum Barnabóli á Skagaströnd mældist 100% í nýlegri könnun sem Skólapúlsinn framkvæmdi. Húnahornið segir frá því að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem ánægja með leikskólann mælist svona mikil en það gerðist líka árið 2024 og 2022.Meira -
Menningarhús og framtíð safna í Skagafirði – um hvað snýst málið í raun? | Berglind Þorsteinsdóttir skrifar
Þar sem heitar umræður hafa spunnist um byggingu menningarhúss í Skagafirði finn ég mig knúna til að greina frá því hvaða þýðingu þessi framkvæmd hefur fyrir starfsemi Byggðasafns Skagfirðinga. Þörf Byggðasafns Skagfirðinga fyrir varanlegt varðveislurými undir safnkostinn er grundvöllur áframhaldandi starfsemi safnsins. Um er að ræða framkvæmd sem á sér mjög langan aðdraganda. Kallað hefur verið eftir íbúakosningu vegna framkvæmdarinnar þar sem spurt er hvort Skagfirðingar vilji yfir höfuð menningarhús. Í ljósi þess sem er í húfi snýst spurningin í raun ekki um menningarhús – heldur þetta: Vilja Skagfirðingar tryggja framtíð safna í héraðinu?Meira -
Grunnskóli austan Vatna Með allt á hreinu !
Allir þekkja kvikmyndina, Með allt á hreinu, þar sem Gærur og Stuðmenn bítast um dansgólfið og hylli landsmanna. Nemendur á unglingastigi Grunnskólans austan Vatna vinna nú hörðum höndum að því að setja stykkið upp á fjölunum í Höfðaborg á Hofsósi. Ragnheiður Halldórsdóttir leikstýrir hópnum en stuðst er við handrit frá Leikfélagi Menntaskólans í Reykjavík sem byggt er á kvikmyndinni.Meira -
Senn geta Skagfirðingar og aðrir góðir gestir rennt sér í nýjum rennibrautum við Sundlaug Sauðárkróks
Síðastliðið sumar bauð Fjársýslan, fyrir hönd sveitarfélagsins Skagafjarðar, út verk sem fólst í forsmíðuðum vatnsrennibrautum og rennibrautaturni, þar með talið efni, vinnu og uppsetningu, fyrir nýtt útisvæði við Sundlaug Sauðárkróks. Niðurstaða útboðsins var að tilboð Sportís var metið hagkvæmast að teknu tilliti til verð- og gæðamats. Um er að ræða þrjár rennibrautir, þar af tvær sem tengjast við nýjan 12 m. háan uppgönguturn. Turninn verður upphitaður, klæddur plexigleri og með led-lýsingu. Ljóst er að mannvirkið mun setja svip sinn á bæinn.Meira
