Gunnar Bragi þakklátur fyrir tímann sem utanríkisráðherra

Skagfirðingurinn Gunnar Bragi Sveinsson lætur af störfum sem utanríkisráðherra og tekur við embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. „Ég þakka fyrir mig og hlakka til að takast á við ný verkefni í atvinnuvegaráðuneytinu sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,“ segir Gunnar Bragi á Facebook-síðu sinni.
Í færslu, sem Gunnar Bragi nefnir „Um það að vera utanríkisráðherra“, segist hann vera þakklátur fyrir þann tíma sem honum gafst til að standa í forsvari fyrir land og þjóð á erlendri grundu. Jafnframt segist hann ánægður með stefnumál ríkisstjórnarinnar sem fylgt hafa verið eftir og þau verk sem komin voru í framkvæmd sem oft á tíðum voru umdeild. Á sama tíma segist hann sannfærður um að niðurstaða þeirra sé til farsældar fyrir þjóðina.
„Ég dreg ekki dul á að þetta embætti hefur þroskað mig og breytt sýn minni á sum mál en í öðrum hef ég styrkst í minni skoðun. Efling jafnréttis bæði innan ráðuneytis og utan þess hafa verið mér hjartans mál en núna í haust munu fyrirhugaðar starfsmannabreytingar verða til þess að hlutfall kynjanna í yfirstjórn mun verða jafnt. Þá hef ég lagt drög að því að auka hlutfall kvensendiherra yfir sendiskrifstofum sem og þeirra skipunum í embætti.Vinna okkar við Barbershop viðburðina hefur verið mjög ánægjuleg og ég er ákaflega stoltur af því hvaða árangri við hér á Íslandi höfum náð og hvað við getum lagt mikið að mörkum til umræðunnar um jafnrétti.
Sú stefna ríkisstjórnarinnar að ganga ekki lengra í samningaviðræðum við Evrópusambandið var umdeild en stefna ríkisstjórnarinnar skýr. Ekki var um að ræða að halda vegferðinni áfram og viðræðum því slitið. Eftir veru mína í utanríkisráðuneytinu hef ég styrkst í þeirri skoðun að hag Íslands sé best borgið utan sambandsins,“ segir Gunnar Bragi.
Tímar mikilla breytinga í alþjóðasamfélaginu
Annað stórt mál sem hann nefnir, á tíma hans í ráðuneytinu, var þvingunaraðgerðir vestrænna ríkja vegna Úkraínudeilunnar og viðskiptabanni Rússa á helstu afurðum sem Ísland selur til þeirra.
„Stefna ríkisstjórnarinnar er skýr, að standa með stærri hagsmunum Íslands, virðingu fyrir alþjóðalögum. Þróunarsamvinna er verulegur hluti utanríkisstefnu Íslands. Núna um áramótin rann Þróunarsamvinnustofnun inn í ráðuneytið og varð til stærri og öflugari eining sem sinnir áfram sömu verkefnum á sviði þróunarsamvinnu. Allt starfsfólk sem boðið var starf þáði það og tel ég að sú ráðstöfun hafi verið rétt og þekkingarbrunnur okkar hafi styrkst. Þetta hafa verið tímar mikilla breytinga í alþjóðasamfélaginu: Stríðsátök, hryðjuverk, flóttamannastraumur og pólitísk ólga hafa einkennt þessi ár sem ég sat á stóli utanríkisráðherra,“ segir Gunnar Bragi.