Gunnar Ríkharðsson kominn til starfa hjá RML á Blönduósi
Gunnar Ríkharðsson hóf störf hjá RML í september og verður með starfsaðstöðu á Blönduósi til áramóta. Hann mun starfa í faghópi nautgriparæktar og sinna fóðurráðgjöf.
Eftir áramót verður Gunnar með starfsaðstöðu á Selfossi og í 100% starfi þar. Hægt er að ná í Gunnar í síma 8954365 eða í gegnum netfangið gr@rml.is. Frá þessu er greint á heimasíðu RML.
Á starfsstöð RML á Blönduósi starfa auk Gunnars Anna Margrét Jónsdóttir ráðunautur og Þórður Pálsson sem er í faghópi nautgriparæktar.