Hættumat vegna ofanflóða kynnt

Hættumatsnefnd Skagafjarðar kynnir nýtt hættumat vegna ofanflóða á Sauðárkróki í opnu húsi á Kaffi Krók á fimmtudaginn kemur, 12. nóvember, frá kl 16 til 18:30. Fulltrúar hættumatsnefndar og sérfræðingar frá Veðurstofu Íslands verða á staðnum til að kynna hættumatið og svara fyrirspurnum gesta.
Frekari upplýsingar er einnig að finna í bæklingi sem dreift var með fundarboði í dag.