Hálkublettir á köflum á Norðurlandi

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er sunnan 3-8 og skýjað með köflum, hiti 1 til 8 stig. Hálkublettir eru á köflum á Norðurlandi en einnig víða nokkur hálka.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag og fimmtudag:

Sunnan og suðaustan 5-10 m/s, en 10-15 vestast. Þurrt og bjart veður á N- og NA-landi, annars skýjað og dálítil væta með köflum. Hiti yfirleitt 2 til 8 stig.

Á föstudag:

Suðaustanátt og súld eða dálítil rigning, en áfram þurrt og bjart fyrir norðan. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:

Austlæg eða breytileg átt og víða rigning eða slydda. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst.

Á sunnudag og mánudag:

Suðlæg átt og fremur milt. Rigning eða slydda með köflum, einkum á sunnanverðu landinu.

Fleiri fréttir