Hálkublettir á Þverárfjalli og Vatnsskarði

Hægviðri er á Norðurlandi vestra í dag, bjartviðri inn til landsins, en skýjað með köflum á annesjum og Ströndum. Hiti 0 til 5 stig, en frost að 6 stigum í innsveitum í nótt.  Hálkublettir eru á Þverárfjalli og Vatnsskarði en einnig eru hálkublettir víða inn til landsins.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:

Austlæg átt 3-8 m/s, en 8-13 syðst. Bjartviðri um landið V-vert, en skýjað að mestu A-lands og smáskúrir eða él á stöku stað. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn, en vægt frost í innsveitum fyrir norðan.

Á fimmtudag:

Austan og norðaustan 5-13 m/s. Dálítil él eða skúrir N- og A-lands, en bjarviðri á S- og V-landi. Hiti 1 til 6 stig, mildast með S-ströndinni.

Á föstudag:

Gengur í allhvassa eða hvassa austanátt. Þurrt V-til á landinu, annars svolítil væta. Hlýnar heldur.

Á laugardag:

Stíf austan- og norðaustanátt með rigningu, talsverð úrkoma A-lands. Hiti 4 til 10 stig.

Á sunnudag:

Útlit fyrir suðaustan- og austanátt. Úrkomulítið á N-landi, annars rigning, talsverð á SA-landi. Hiti 5 til 10 stig.

Á mánudag:

Breytileg átt og rigning með köflum í flestum landshlutum. Áfram milt í veðri.

Fleiri fréttir