Handbók um hestaferðaþjónustu komin út

Út er komin handbók sem ber heitið „A Good Practice Guide to Equine Tourism – Developing Native Breed Equine Tourism in the North Atlantic Region“. Höfundar handbókarinnar eru Guðrún Helgadóttir, prófessor við Háskólann á Hólum, Ingibjörg Sigurðardóttir, lektor við Háskólann á Hólum og Rhys Evans.
Handbókin fjallar um tækifæri í þróun fyrirtækja í hestaferðaþjónustu þar sem áhersla er lögð á notkun upprunalegra norrænna hestakynja. Er þetta rit afrakstur verkefnisins Riding Native Nordic Breeds sem styrkt var af Nora.
Þetta verkefni sem og fyrri rannsóknir við ferðamáladeild Háskólans á Hólum sýna, að þekking þeirra sem reka eða vilja undirbúa rekstur fyrirtækis í hestaferðaþjónustu er haldgóð á sviði hestamennsku en að meiri þörf er á aukinni þekkingu á uppbyggingu, stjórnun og rekstri fyrirtækja. Því er lögð rík áhersla á þann þátt í handbókinni.
Handbókin er gefin út með rafrænum hætti og er öllum opin. Höfundarnir vona að ritið komi hestaferðaþjónustunni að góðum notum. Höfundar vilja einnig koma því á framfæri, að forsíðumynd handbókarinnar er tekin af Herdísi Reynisdóttur, sem veitti góðfúslega leyfi fyrir notkun hennar, eins og segir í fréttinni á vef Hólaskóla.