Hátíðin er hafin í Skagfirðingabúð – Skagfirskir bændadagar

Skagfirskir bændadagar eru hafnir í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki. Ljósm./BÞ
Skagfirskir bændadagar eru hafnir í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki. Ljósm./BÞ

Skagfirskir Bændadagar hefjast í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki í dag og var fólk tekið að streyma í verslunina þegar hún opnaði í morgun en þar er hægt að gera góð kaup á fjölbreyttu úrvali af matvælum úr skagfirsku hráefni. Bændur munu bjóða gestum að smakka á ýmsum vörum úr þeirra framleiðslu milli klukkan 14 og 18, í dag og á morgun.

Að sögn Árna Kristinssonar verslunarstjóra er fjöldi frábæra tilboða í gangi og gerast verðin ekki lægri, t.d. á lambakjöti, osti og smjöri.  

Meistarakokkurinn að vanda er Árni Þ. Arnórsson gestakokkur Bændadaga og ætlar að töfra fram dýrindis rétti fyrir gesti og gangandi úr nýju uppskrifariti, sem gefið hefur verið út í tilefni hátíðarinnar. Í ritinu má finna fullt af nýjum og spennandi uppskriftum.

Hér eru nokkrar myndir sem blaðamaður Feykis smellti af skömmu eftir opnun í morgun. 

 

Fleiri fréttir