Heimaleikur hjá Stólastelpunum í kvöld
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
05.08.2015
kl. 11.32
Meistaraflokkur Tindastóls í kvennaboltanum tekur á móti liði Einherja á Sauðárkróksvelli í kvöld. Leikurinn byrjar klukkan 18.30. Tindastóll spilar í C- riðli í 1. deildinni og sitja í öðru sæti með 14 stig. Einherji er í síðasta sæti í riðlinum, eða því 7. með 3 stig.
Fjölmennum á völlin og hvetjum stelpurnar til sigurs!
Fleiri fréttir
-
Menningarhús og framtíð safna í Skagafirði – um hvað snýst málið í raun? | Berglind Þorsteinsdóttir skrifar
Þar sem heitar umræður hafa spunnist um byggingu menningarhúss í Skagafirði finn ég mig knúna til að greina frá því hvaða þýðingu þessi framkvæmd hefur fyrir starfsemi Byggðasafns Skagfirðinga. Þörf Byggðasafns Skagfirðinga fyrir varanlegt varðveislurými undir safnkostinn er grundvöllur áframhaldandi starfsemi safnsins. Um er að ræða framkvæmd sem á sér mjög langan aðdraganda. Kallað hefur verið eftir íbúakosningu vegna framkvæmdarinnar þar sem spurt er hvort Skagfirðingar vilji yfir höfuð menningarhús. Í ljósi þess sem er í húfi snýst spurningin í raun ekki um menningarhús – heldur þetta: Vilja Skagfirðingar tryggja framtíð safna í héraðinu?Meira -
Grunnskóli austan Vatna Með allt á hreinu !
Allir þekkja kvikmyndina, Með allt á hreinu, þar sem Gærur og Stuðmenn bítast um dansgólfið og hylli landsmanna. Nemendur á unglingastigi Grunnskólans austan Vatna vinna nú hörðum höndum að því að setja stykkið upp á fjölunum í Höfðaborg á Hofsósi. Ragnheiður Halldórsdóttir leikstýrir hópnum en stuðst er við handrit frá Leikfélagi Menntaskólans í Reykjavík sem byggt er á kvikmyndinni.Meira -
Senn geta Skagfirðingar og aðrir góðir gestir rennt sér í nýjum rennibrautum við Sundlaug Sauðárkróks
Síðastliðið sumar bauð Fjársýslan, fyrir hönd sveitarfélagsins Skagafjarðar, út verk sem fólst í forsmíðuðum vatnsrennibrautum og rennibrautaturni, þar með talið efni, vinnu og uppsetningu, fyrir nýtt útisvæði við Sundlaug Sauðárkróks. Niðurstaða útboðsins var að tilboð Sportís var metið hagkvæmast að teknu tilliti til verð- og gæðamats. Um er að ræða þrjár rennibrautir, þar af tvær sem tengjast við nýjan 12 m. háan uppgönguturn. Turninn verður upphitaður, klæddur plexigleri og með led-lýsingu. Ljóst er að mannvirkið mun setja svip sinn á bæinn.Meira -
Mildi að ekki fór verr
Alvarlegt óhapp varð við Jökulsárbrú neðan við Goðdali sl. fimmtudag þegar bifreið lenti í flóði af krapa, snjó og grjóti. Aðstæður á svæðinu voru erfiðar og virðist sem skyndilegt aur- og krapaflóð hafi fallið yfir veginn og skollið á bílnum með miklum krafti.Meira -
Mikið er um að vera hjá íþróttahreyfingunni
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla 23.03.2026 kl. 10.50 gunnhildur@feykir.isHefur þú áhuga á íþróttum? Ef svarið er já þá er nóg um að vera í dag mánudaginn 23. mars. Íþrótta- og Ólympíusamband íslands, Ungmennafélag Íslands, Svæðisskrifstofur íþróttahéraða standa fyrir þremur mismunandi viðburðum í sal Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra. Um er að ræða þrjá ólíka viðburði sem hægt er að lesa nánar um hér að neðan.Meira
