Heldri bílar aka yfir Héraðsvatnabrúna þann 17. júní
feykir.is
Skagafjörður, Mannlíf, Lokað efni
16.06.2026
kl. 10.27
Ekið yfir Héraðsvatnabrúna. Aftari bíllinn er gamli Ford, árgerð 1930, sem Bjössi Sverris gerði upp og sá fremri er Studebaker Erskine, sömuleiðis árgerð 1930, í eigu Ólafs Arnar Haraldssonar. Myndin var tekin árið 1999. MYND: PÉTUR INGI
Þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní, er á morgun en það er fæðingardagur Jóns forseta Sigurðssonar. Í Skagafirði munu eigendur eldri og virðulegri bíla taka rúnt í tilefni dagsins líkt og gert hefur verið í áraraðir en að þessu sinni ætla fornbílaeigendur að koma við á gömlu brúnni yfir vesturós Héraðsvatna. Og tilefnið er ekki ónýtt, brúin er 100 ára um þessar mundir.
