Helgarnám í húsgagnasmíði

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra mun bjóða upp á nám í húsasmíði og húsgagnasmíði með vinnu á vorönn 2017, ef næg þátttaka fæst. Námið tekur fjórar annir þar sem kennt er fimm helgar fyrstu þrjár annirnar og sex helgar þá fjórðu. Námið er ætlað nemendum 20 ára og eldri, sem hafa reynslu af byggingavinnu.
Gisting á heimavist FNV er í boði fyrir nemendur. Hægt er að sækja um námið til 1. nóvember næstkomandi, en nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu skólans í síma 455 8000 eða hjá Atla Má Óskarssyni í síma 860-2083.