Helgistund í Grafarkirkju

Grafarkirkja er eitt elsta guðshús Íslands
Grafarkirkja er eitt elsta guðshús Íslands

Hin árlega helgistund í Grafarkirkju á Höfðaströnd verður haldin sunnudagskvöldið 7. ágúst og hefst stundin kl. 20.00. Það er sr. Halla Rut Stefánsdóttir sem þjónar fyrir altari.

Kirkjukór Hofsóss syngur fallega sálma undir stjórn Önnu Kristínar Jónsdóttur.

Að venju verður boðið upp á kaffisopa og meðlæti að athöfn lokinni.

Í tilkynningu frá sóknarpresti, sóknarnefnd og kirkjukór eru allir boðnir hjartanlega velkomnir.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir