Hildur Magnúsdóttir frumkvöðull mánaðarins

Hildur Magnúsdóttir frumkvöðull
Hildur Magnúsdóttir frumkvöðull

Atvinnumál kvenna og Svanni-lánatryggingasjóður hefur útnefnt Hildi Magnúsdóttur, frumkvöðul og stofnanda Pure Natura á Sauðárkróki, frumkvöðul febrúarmánaðar. Pure Natura var stofnað í september 2015 og framleiðir vítamín og fæðubótarefni úr innmat og kirtlum úr íslensku sauðfé í bland við villtar íslenskar jurtir.

Á heimasíðu Atvinnumála kvenna segir að næstu skref hjá Pure Natura verði þau að koma vörunum á markað hér á landi og svo í framhaldinu stefnt á útflutning á Bandaríkjamarkað meðfram því að halda áfram með nýsköpun og þróun.  „Fyrsta skref okkar í átt að koma vörunum okkar á markað var að stofna áheitareikning á Karolina fund, þar sem fólk getur heitið á okkur og tryggt sér í staðinn vörur úr fyrstu framleiðslulotu fyrirtækisins. En með því að gera þetta getur fólk ekki bara fengið sent heim að dyrum hágæða bætiefni sem styðja við hjarta og æðakerfi, lifrina og gefa aukna orku, á lægra verði en útsöluverð frá okkur verður þegar vörurnar koma á markað, en einnig stutt við íslenska nýsköpun í leiðinni,“ segir Hildur og hvetur fólk til að fara inn á Karolina fund og styðja við verkefnið. „Þetta er allt eða ekkert sjóður og bara nokkrir dagar eftir af verkefninu. Ef markmiðið næst ekki fyrir 10.febrúar detta öll áheit niður dauð.“

Sjá viðtal Atvinnumála kvenna við Hildi HÉR

Fleiri fréttir