Hildur Þóra ráðin í stöðu atvinnuráðgjafa með sérhæfingu á sviði ferðamála
Þann 19. júní sl. rann út umsóknarfrestur til að sækja um starf sem auglýst var hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) um stöðu atvinnuráðgjafa með sérhæfingu á sviði ferðamála. 19 umsóknir bárust en tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka. Í samráði við Fagráð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra ákvað stjórn SSNV að ráða Hildi Þóru Magnúsdóttur og mun hún hefja störf 1. september nk.
Hildur Þóra er með B.S. próf í viðskiptafræði af stjórnunarsviði frá Háskólanum á Akureyri auk þess sem hún lauk M.Sc. gráðu í fjármálum og alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Árósum í Danmörku. Hildur hefur undanfarna mánuði unnið við sérverkefni og afleysingar hjá SSNV atvinnuþróun. Síðustu ár hefur hún m.a. starfað við ferðaþjónustu á svæðinu, byggt upp eigin rekstur auk þess að sinna félagsstörfum á vettvangi ferðaþjónustu.
Aðspurð segist Hildur sjá fjölmörg tækifæri í ferðaþjónustu í landshlutanum og segist hún hlakka mikið til að takast á við þetta nýja, skemmtilega og ekki síst krefjandi verkefni sem framundan er. „Þetta snýst allt um samstarf og góða samvinnu milli ferðaþjónustuaðila og annarra á Norðurlandi vestra,“ og er Hildur vongóð um að svo muni raunin verða.