Hitað upp fyrir Gæruna
feykir.is
Skagafjörður
05.08.2011
kl. 14.21
Upphitun verður fyrir Gæruna í kvöld föstudagskvöldið 5. ágúst á skemmtistaðnum Sódómu við Hafnarstræti. Þar koma fram hljómsveitirnar Vigri, Úlfur Úlfur, Contalgen Funeral og fleiri spila. Miðar á Gæruna verða seldir á staðnum. Miðaverð er bara 500 krónur og því um að gera að skella sér.
