Hjálparstarf kirkjunnar fær góða gjöf frá Varmahlíðarskóla

Kristinn Örn Guðmundsson, séra Dalla Þórðardóttir, séra Gísli Gunnarsson og Lydía Einarsdóttir við afhendingu gjafar til Hjálparstarfs kirkjunnar frá nemendum og starfsfólki Varmahlíðarskóla. MYND: VARMAHLÍÐARSKÓLI.IS
Kristinn Örn Guðmundsson, séra Dalla Þórðardóttir, séra Gísli Gunnarsson og Lydía Einarsdóttir við afhendingu gjafar til Hjálparstarfs kirkjunnar frá nemendum og starfsfólki Varmahlíðarskóla. MYND: VARMAHLÍÐARSKÓLI.IS

Litlu jólin voru haldin hátíðleg í Varmahlíðarskóla í morgun en að þessu sinni voru ekki hefðbundin pakkaskipti. Ákveðiðvar að bæði starfsfólk og nemendur létu gott af sér leiða með söfnun til góðgerðarmála. Fyrir valinu varð að styrkja Hjálparstarf kirkjunnar með gjöf til þeirra sem minna mega sín. 

Á heimasíðu Varmahlíðarskóla segir að nemendur í stjórn nemendafélagsins hafi síðan tekið ákvörðun um að óska þess að fénu yrði varið að hluta til alþjóðlegs hjálparstarfs, til kaupa á vatnstanki og 5000 trjám og það sem safnaðist umfram það verði veitt til hjálparstarfs innanlands. Margt smátt gerir eitt stórt.

Lydía Einarsdóttir og Kristinn Örn Guðmundsson, formenn nemendafélagsins afhentu séra Döllu Þórðardóttur og séra Gísla Gunnarssyni gjöfina að viðstöddum nemendum 10. bekkjar. Aðrir hópar skólans fylgdust með í beinu streymi, þar sem öllum er hólfaskipt vegna sóttvarnaráðstafana. Heildarupphæðin sem safnaðist var 142.500 krónur.  Gísli og Dalla þökkuðu kærlega fyrir fallega gjöf. Þau sögðu frá því að gjöfin kæmi sér afskaplega vel við að veita þeim hjálp sem eru hjálparþurfi og hrósuðu fyrir fallegt hjartalag. 

„Við erum sannfærð um að þetta sé gjöf sem gefur á báða bóga og þökkum fyrir góða þátttöku og samstöðu nemenda og starfsfólks við söfnunina,“ segir síðan á heimasíðunni.

Frábært framtak!

Fleiri fréttir