Hlutverki Kára lokið

Bjarni Maronsson afhendir Kára Gunnarssyni þakklætisvott fyrir unnin störf. Aðsend mynd.
Bjarni Maronsson afhendir Kára Gunnarssyni þakklætisvott fyrir unnin störf. Aðsend mynd.

Nú um áramótin lét Kári Gunnarsson frá Flatatungu af störfum hjá Byggðasögu Skagafjarðar eftir gríðarmikið framlag til þessa mikla ritverks.

Fyrir réttum þrettán árum var Kári ráðinn að hlið Hjalta Pálssonar ritstjóra til vinnu við ritun Byggðasögunnar, utanumhalds við prentun, sölu og dreifingu bókanna og fjömargra annarra verkefna sem til falla við svo umfangsmikið og flókið verk. Hefur þar nýst vel áhugi Kára á þjóðlegum fróðleik og lagni hans við söfnun upplýsinga hjá þeim sem „gott kveða“ ásamt mikill næmni á umhverfi og náttúru. Dylst engum sem til þekkir það þrekvirki sem Byggðasagan er og ómetanleg heimild um búhætti, sögu og menningu Skagafjarðar um aldir enda hefur verkið verið rúma tvo áratugi í vinnslu og lýkur með útgáfu tíunda og síðasta bindis nú á haustdögum.

Við starfslok Kára afhenti Bjarni Maronsson, formaður stjórnar Byggðasögunnar, honum áritaða bók frá útgáfustjórninni sem þakklætisvott fyrir framúrskarandi framlag við varðveislu skagfirskarar menningar, frumkvæði og farsæld í störfum.

/Gunnar Rögnvaldsson

Fleiri fréttir